Í leiklist er fátt ómögulegt og við fengum að kynnast því þegar börnin fengu að velja sér persónur sem þau vildu vera. Þau klæddu sig öll upp og tókum við myndir af þeim við græna tjaldið okkar svo við gætum gert tölvutöfra. Myndirnar í stærri upplausn má sjá í albúminu.
Þetta er upphafið af öðru verkefni sem hefst eftir áramót og er með beina tengingu við heiti menntastefnu Reykjavíkur. Látum Draumana Rætast.
Elstu tvær deildar leikskólans höfðu margbeðið um að fá andlitsmálningu í leiklistarstundunum.
Þau fengu ósk sína uppfyllta í síðustu viku en þá með öðru sniði en þau bjuggust við.
Í stað þess að fá teiknaðan karakter á sig þá fengu börnin að stjórna penslinum og gerðu verkin alveg af eigin ramleik.
Meðfram ástandinu sem er í heiminum núna hefur mikil umræða um læknastéttina, hjúkrunafræðinga og sjúkrahús átt sér stað. Í Laufskálum er engin undantekning þar sem börnin ræða sín á milli og við kennara að læknarnir séu að lækna fólk með kórónuveiruna ásamt því að laga öll önnur veikindi, sár og verki. Það var því tilvalið að fá bangsann Parker í heimsókn og læra aðeins um það sem læknar gera.
Parker er tengjanlegur við smáforrit sem lætur vita hvað hrjáir hann hverju sinni. Síðan skiptumst við á að finna út hvað við getum gert til að lækna hann.
Læknisleikur er einn besti hlutverkaleikurinn til að fá börn til að hugsa í rökum, sýna samúð og samkennd. Krakkarnir stóðu sig svo vel að það verður erfitt að skipuleggja eins áhugaverða leiklistastund og þessa. Meðfylgjandi er skráning þessara stunda en einnig eru fleiri myndir komnar inn á myndasafnið.