Basics template

Menu
  • Forsíða
  • Foreldrar
    • Foreldrasamstarf
    • Foreldrafélag
      • Fréttir
      • Fundargerðir
    • Foreldraráð
      • Fréttir
      • Fundargerðir
  • Leikskólinn
    • Fréttasafn
    • Hagnýtar upplýsingar
    • Stefna og starfsáætlun
    • Leikskólastarf
    • Dagatal
    • Starfsfólk
    • Deildir
      • Grenilundur
        • Fréttir
        • Starfsfólk
      • Birkilundur
        • Fréttir
        • Starfsfólk
      • Furulundur
        • Fréttir
        • Starfsfólk
      • Lerkilundur
        • Fréttir
        • Starfsfólk
    • Eldhús
      • Matseðill
      • Matur í Laufskálum
      • Starfsfólk
    • Söngbók
      • Vorlög
      • Sumarlög
      • Haustlög
      • Vetrarlög
      • Jólalög
      • Vinalög
    • Krækjur
      • Skóla- og frístundasviðSkóla- og frístundasvið
      • MenntastefnaMenntastefna
      • Lesið í leikLesið í leik
      • Rafræn ReykjavíkRafræn Reykjavík
      • Fjölmenning í leikskólumFjölmenning í leikskólum
      • Barnasáttmáli Sameinuðu ÞjóðannaBarnasáttmáli Sameinuðu Þjóðanna
  • Leiklistarleikskóli
    • Leiklistarverkefni
    • Fréttir
  • Myndir

Basics template

  • Forsíða
  • Foreldrar
    • Foreldrasamstarf
    • Foreldrafélag
      • Fréttir
      • Fundargerðir
    • Foreldraráð
      • Fréttir
      • Fundargerðir
  • Leikskólinn
    • Fréttasafn
    • Hagnýtar upplýsingar
    • Stefna og starfsáætlun
    • Leikskólastarf
    • Dagatal
    • Starfsfólk
    • Deildir
      • Grenilundur
        • Fréttir
        • Starfsfólk
      • Birkilundur
        • Fréttir
        • Starfsfólk
      • Furulundur
        • Fréttir
        • Starfsfólk
      • Lerkilundur
        • Fréttir
        • Starfsfólk
    • Eldhús
      • Matseðill
      • Matur í Laufskálum
      • Starfsfólk
    • Söngbók
      • Vorlög
      • Sumarlög
      • Haustlög
      • Vetrarlög
      • Jólalög
      • Vinalög
    • Krækjur
      • Skóla- og frístundasviðSkóla- og frístundasvið
      • MenntastefnaMenntastefna
      • Lesið í leikLesið í leik
      • Rafræn ReykjavíkRafræn Reykjavík
      • Fjölmenning í leikskólumFjölmenning í leikskólum
      • Barnasáttmáli Sameinuðu ÞjóðannaBarnasáttmáli Sameinuðu Þjóðanna
  • Leiklistarleikskóli
    • Leiklistarverkefni
    • Fréttir
  • Myndir

Hagnýtar upplýsingar

Nánar

  • Aðlögun
  • Afmæli
  • Fjarvera - veikindi / frí
  • Lyfjagjafir
  • Klæðnaður
  • Opnunartími leikskólans
  • Skipulagsdagar
  • Græn Skref - Taupoki
  • Aðlögun

    Fyrirkomulag

    Fyrsta daginn mætið þið klukkan 9:00. Í fataklefanum verður hólf merkt barninu þar sem útifatnaður og önnur aukaföt eru geymd. Frá klukkan 9:00 til klukkan 11:00 verðið þið í frjálsum leik innan deildarinnar þar sem áhersla er lögð á að þið kynnist starfsfólki, börnum og öðrum foreldrum. Allir fá afhent nafnspjöld í upphafi til þess að auðvelda samskipti. Um klukkan 11 skipta foreldrar á börnum sínum og í framhaldi af því verður söngstund með starfsfólki í innra herbergi deildarinnar. Foreldrar fá söngtextablöð svo að allir geti sungið með. Kl 11:30 verður boðið upp á hádegismat en foreldrar sjá um að gefa sínu barni að borða. Eftir hádegismat verður lögð niður hvíld þar sem börnunum stendur til boða að hvíla sig. Vilji börnin ekki sofna fara þau heim en við hvetjum þó alla til þess að prófa að leggjast niður og kynna sér aðstæður í hvíldinni. Ef barnið sofnar er ykkur boðið upp á kaffi á meðan það sefur. Ykkur stendur einnig til boða að fara heim á meðan en starfsfólk mun þá hringja í ykkur þegar barnið er vaknað.

    Næstu tveir dagar eru með svipuðu sniði en þá mætið þið klukkan 08:30 í leikskólann og borðið saman morgunmat. Á milli 09:30 og 10:30 verður útivera en foreldrar klæða börnin sín og eru með þeim í leik úti í garði. Eftir útiveru verður farið inn, skipt á börnunum og síðan farið í samverustund í innra herbergi. Hádegismatur er sem fyrr klukkan 11:30. Eftir hádegismat sjá starfsmenn um hvíld á meðan foreldrar draga sig í hlé. Á meðan börnin sofa koma foreldrar saman á eldri deild leikskólans og vinna að ættartré fyrir barnið sitt. Þið eruð því beðin um að koma með myndir af fjölskyldumeðlimum, vinum og/eða gæludýrum annan dag aðlögunar til þess að líma á ættartréð. Þau geta reynst mikil huggun þegar kemur að því að kveðja mömmu eða pabba. Vinnan við ættartréið er frjáls, kjósi foreldrar að vinna það heima er það velkomið.

    Á meðan börnin sofa eru þið hvött til þess að draga ykkur í hlé frá deildinni og skreppa frá í stuttan tíma. Þetta gefur kennurum tækifæri til þess að vinna inn traust hjá börnunum þegar þau vakna. Ef allt gengur vel er hringt í foreldra u.þ.b. 30 mín eftir að barnið vaknar, annars fyrr.

    Eftir að börnin vakna er rólegur leikur inni á deildum og foreldrar skipta á börnunum sínum. Klukkan 14:30 verður nónhressing en eftir það fara börnin heim.

    Á fjórða degi mætið þið í leikskólann klukkan 08:30 og borðið saman morgunmat. Klukkan 09:00 verður sameiginleg söngstund í alrými leikskólans þar sem börn af öllum deildum koma saman og syngja. Þegar söngstundinni er lokið koma foreldrar með börnum sínum inn á deild og kveðja svo. Gott er að hafa í huga að barnið dvelji ekki allan daginn í leikskólanum fyrstu dagana heldur sé sótt á milli 15 og 16.

    Þáttökuaðlögun

    Þegar lítið barn byrjar í leikskóla eru það gríðarleg tímamót, bæði í lífi þess sjálfs og foreldranna. Fyrir margar fjölskyldur eru þetta tímamót sem krefjast breytinga á högum þeirra og valda streitu. Til þess að auðvelda bæði börnum og foreldrum umskiptin hefur í gegnum tíðina tíðkast að setja upp sérstakt skipulag í leikskólanum sem gengur undir nafninu aðlögun. Núverandi aðlögunarform byggir á svokölluðum tengslakenningum sem eru unnar út frá kenningum John Bolwby annars vegar og Mary Ainsworth hinsvegar. Í ljósi þessara kenninga er talið að það geti haft slæmar afleiðingar fyrir tilfinningaþroska barnsins og möguleika til náms ef þessi aðskilnaður er of snarpur. Þetta form aðlögunar beinist fyrst og fremst að börnunum en henni er ætlað að létta þeim aðskilnaðinn og byggir á þeirri trú að ef barnið og foreldrarnir fá góðan tíma til að venjast lífinu í leikskólanum valdi aðskilnaðurinn litlu sem engu áfalli. Börnin kynnast þannig starfsfólkinu smá saman og traust skapast á milli þeirra. Síðustu ár hefur einnig verið lögð aukin áhersla á að foreldrar fái tækifæri til að kynnast starfsfólki og treysta því.

    Skipulag hefðbundinnar aðlögunar er gjarnan sett upp á þann hátt að barnið kemur í leikskólann með foreldrum og stoppar stutt við fyrsta daginn. Næstu daga eru foreldrar með barninu en bregða sér frá, fyrst stutt en síðan er tíminn lengdur smátt og smátt. Aðlögunarferlið tekur gjarnan frá viku til tíu daga. Það getur því tekið töluverðan tíma að aðlaga börn á heila deild í leikskólanum og skipulagt starf hefst þ.a.l. seint.

    Þátttökuaðlögun byggir meðal annars á þeirri trú að öruggir foreldrar smiti eigin öryggiskennd yfir til barna sinna. Foreldrar eru fullir þátttakendur frá fyrsta degi og öðlast þ.a.l. öryggi um dagskipulagið og það sem á sér stað í leikskólanum. Foreldrarnir eru með börnum sínum fyrstu þrjá dagana í leikskólanum og eru með þeim inni á deild allan tímann, nema þegar þau sofa. Foreldrar sinna sínum eigin börnum, skipta á þeim, gefa þeim að borða, leika með þeim og eru til staðar. Starfsfólk tekur einnig þátt en það skipuleggur daginn, deilir verkefnum og skráir það sem fyrir augu ber. Á fjórða degi koma börnin um morguninn, kveðja foreldra sína og eru fullan dag í leikskólanum. Í einhverjum tilfellum þarf barn að hafa foreldri hjá sér fjórða daginn en reynslan sýnir að þau eru mjög fá. Með þessu fá foreldrar tækifæri til þess að kynnast hvert öðru, kynnast starfsfólki og sjá það í verki og öðlast skilning á þeim raunveruleika sem börnin upplifa innan leikskólans á degi hverjum.

    Í rannsókn á þátttökuaðlögun sem Kristín Dýrfjörð framkvæmdi kemur fram að almennt töldu deildarstjórar að meiri nánd næðist við foreldra í þátttökuaðlögun og þeir væru ekki lengur í hlutverki gesta heldur væru orðnir heimavanir á leikskólanum. Einnig upplifðu deildarstjórar að samskipti við foreldra væri ekki eins þvinguð og einnig töldu þeir sig þekkja foreldrana betur. Deildarstjórum fannst börnin öruggari í þessari aðlögun því þau eru ekki stöðugt að leita að foreldrunum. Aðlögunin virkar meira sem heild og börnin venjast því frá upphafi að vera lengi á leikskólanum. Öllum deildarstjórum sem tóku þátt í rannsókninni fannst að börnin virkuðu örugg á fjórða degi. Almennt var lítið um bakslag hjá börnunum en þó var eitt og eitt barn sem þurfti lengri tíma.

    Hér má nálgast bæklinginn "Velkomin til samstarfs um leikskólabarnið!"

  • Afmæli

    Þegar börnin eiga afmæli mega þau koma með ávexti og grænmeti með sér til að bjóða hinum. Börnin útbúa kórónur með hjálp kennara og haldin er afmælissamvera þar sem afmælisbarnið er í brennidepli.

  • Fjarvera - veikindi / frí

    Ef barn kemur ekki í leikskólann vegna veikinda eða af öðrum ástæðum vinsamlegast látið okkur vita. Hægt er að láta vita með því að hringja í leikskólann í síma 411-3880 eða skrá fjarvist í Völu appinu.

    Fái barnið smitandi sjúkdóm þarf það að dvelja heima þar til smithætta er liðin hjá. Þetta er nauðsynleg ráðstöfun til að forðast útbreiðslu sjúkdóma.

    Veikist barn með hita skal það dvelja heima þar til hitalaust. Góð regla er að gefa barninu tækifæri á að jafna sig á hitapest með því að dvelja hitalaust heima í amk 1 sólahring.

    Útivist er mikilvægur þáttur leikskólastarfsins og börnin fara út á hverjum degi. Mikilvægt er að þau hafi viðeigandi klæðnað alltaf með í leikskólann. Við höfum miðað við að fara ekki út ef frost fer í -6 gráður og vind eða ef svellbunkar í garðinum verða of margir og erfitt er að fóta sig.

    Foreldrar hafa tilhneigingu til að óska eftir inniveru fyrir börn sín í því skyni að verja þau gegn sýkingum og öðrum veikindum. Það er ekkert sem bendir til þess að börn sýkist fremur í útilofti en innandyra og við getum ekki orðið við þessum óskum um inniveru.

    Það er gert ráð fyrir að börnin taki þátt í öllu starfi leikskólans úti sem inni og við tökum ekki á móti veikum börnum í leiksólann sem þurfa veikinda sinna vegna að vera inni. Þegar barn kemur í leikskólann eftir veikindi á það að vera tilbúið að taka þátt í öllu starfi leiksólans úti og inni.

    Hægt er að koma til móts við óskir um inniveru eingöngu með að barn fari síðast út og fyrst inn, vinsamlegast biðjið starfsfólk ekki um annað.

    Veikist barnið í leikskólanum höfum við samband við foreldra sem þurfa að sækja barnið strax, við bregðumst við hverju tilfelli eftir bestu vitund.

  • Lyfjagjafir

    Landlæknisembættið sendi bréf til allra heilsugæslu- og barnalækna þess efnis að lyfjagjöfum yrði þannig háttað að þær færu ekki fram á þeim tíma dagsins sem barnið dveldi í leikskólanum, ef mögulegt væri.
    Því biðjum við foreldra að hafa þetta í huga og reyna að haga lyfjagjöf þannig að hún fari fram heima.
    Tilkynning þessi er frá Katrínu Davíðsdóttur barnalækni hjá Miðstöð heilsuverndar barna.

  • Klæðnaður

    Farið er daglega í útiveru þegar veður leyfir. Börn hafa gott af því að komast út og í ferska loftið. Þau læra á umhverfið og að vera úti í íslensku veðurfari.

    Börnin þurfa að vera í fötum sem mega verða skítug og blaut, þar sem gert er ýmislegt í leikskólanum eins og að drullumalla, mála og fleira sem börnin hafa gaman af.

    Í fatakassa barnanna þarf að vera:

    • Aukaföt, buxur, bolir, sokkar/sokkabuxur, nærföt/samfellur og peysur.
    • Gott er að hafa tvennt af öllu.Nauðsynlegt er að merkja öll föt vel.

    Börnin þurfa að hafa útiföt sem henta veðri.

    • Pollagalla, flísföt/hlýja peysu, kuldagalla, ullarsokka, vettlinga og húfu.

    Eindregið er mælt með að börnin séu með lambhúshettur yfir vetrartímann.

  • Opnunartími leikskólans

    Leikskólinn er opinn alla virka daga frá kl 7.30 - 17.00 og eru foreldrar beðnir um að virða vistunartíma barnsins.

  • Skipulagsdagar

    Leikskólinn hefur sex skipulagsdaga á ári. Skipulagsdagarnir eru til skipulagningar á uppeldis- og fræðslustarfi leikskólans og fyrir endurmenntun starfsfólksins. Þetta eru einu skiptin sem allt starfsfólkið kemur saman og vinnur að nauðsynlegum undirbúningi og gerð áætlana fyrir starfið.

  • Græn Skref - Taupoki

    Við í Laufskálum tökum hvert skrefið á fætur öðru í umhverfisverndarmálum. Við höfum flokkað í töluverðan tíma og gengur vel.

    Núna erum við að huga að plastnotkun í leikskólanum og stígum skref í átt að plastleysi. Leikskólinn á taupoka merkta Laufskálum sem verða teknir í notkun í vikunni.

    Taupokarnir leysa af hólmi plastpoka sem hafa verið sendir heim með blautum/óhreinum fötum barnanna. Pokinn verður settur í hólf barnsins einsog plastpokinn áður og þið getið borið blaut/óhrein föt heim í honum.

     Vinsamlegast skilið pokanum aftur í leikskólann sem fyrst á snaga við hlið speglaskáps í fataherbergi. Best er ef pokinn er tandurhreinn. Það má vel setja pokana í þvottavél og þurrkara og skila honum svo.

    Við vonumst eftir góðu samstarfi við ykkur kæru foreldrar og vitum að það er þá minna plast sem kemur frá ykkar heimili ef taupokinn leysir plastpokann af hólmi við burð á blautum og óhreinum fötum.

Stefna og starfsáætlun

  • Skólanámskrá Laufskála
  • Starfsáætlun 2020-2021
  • Skóladagatal 2020-2021

Áætlanir

  • Viðbrögð við einelti
  • Röskun á starfi vegna óveðurs
  • Disruption of school operations
  • Meðferð persónuupplýsinga hjá skóla- og frístundasviði

Leikskólinn Laufskálar

Laufrimi 9 112 Reykjavík
Sími: 411-3880
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Sendu okkur póst
Innskráning